|
Víkurflóð er 12 ha og veiðileyfi gilda í því öllu. Þar veiðist
vatnableikja, urriði og sjóbirtingur, 1-6 pund.
Víkurflóð er 1 km frá bænum Efri-Vík og hægt er
að aka alla leið að því.
Heimilt er að veiða allan sólarhringinn.
Veiði er leyfð allt árið um kring.
Allt löglegt agn er leyfilegt: Fluga, maðkur og spónn. Góð
aðstaða er til fluguveiða.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Hörður Davíðsson, Efri-Vík, s: 487-4694
Vegalengdin frá
Reykjavík er u.þ.b. 275 km og
4 km frá Klaustri.
 |