|
Leiðin upp Skaftártunguna vestan Skaftár er hrífandi fögur
og fær jeppum. Best er að aka sem leið liggur upp úr Álftaveri gamla þjóðveginn um
Hrífunes og inn á fjallveg F22. Þaðan er farið eins og leið liggur um Eldgjá, upp
og yfir Herðubreiðarháls og strax til hægri handan hans.
Þar liggur jeppaslóði meðfram Skuggafjallakvísl og
Grænafjallagarði alla leið að suðvesturenda Langjasjávar og Sveinstindi.
Annar slóði liggur síðan meðfram vatninu norðvestanverðu um Breiðbak í
Tungnárfjöllum, sem sumir hafa notað til að aka yfir upptakakvíslar
Tungnár til Jökulheima Skaftáreldar, sem brunnu árið 1783, sköpuðu þetta
stórkostlega landslag og voru skaðlegustu náttúruhamfarir fyrir lífríki
landsins á sögulegum tíma byggðar í landinu. |