|
Vatnshlíðarvatn
er sunnan vestasta bæjarins í Vatnsskarði í Austur-Húnavatnssýslu.
Vatnshlíðarjörðin tilheyrði forðum Glaumbæ í Skagafirði
og var silungsveiði í vatninu talin til hlunninda.
Talsvert er af silungi í vatninu og þar hafa orðið slys, bæði
í vatninu og afrennsli þess,
sem rennur til Valadalsár.
Árið
1759 tók bæinn af í gríðarlegu flóði, sem kom niður klettagil
í Vatnshlíðarfjalli. Vinnukona
og barn voru grafin upp lifandi daginn eftir.
Systir húsfreyjunnar komst upp á bita og gat krafsað sig út
um glugga og sótt hjálp frá næstu bæjum.
Húsfreyjan fannst lifandi, liggjandi fram á barnsruggu.
Hún dó strax á eftir en barnið lifði.
Bóndinn fannst dauður í göngunum og löngu síðar fannst
vinnukona
með lífsmarki.
 |