|
Lítil spræna, sem
kemur úr Heiðarvatni í Mýrdal og fellur í Kerlingardalsá, jökuldrullu, sem á
upptök í Mýrdalsjökli. Vatnsá er stutt, aðeins rúmir tveir kílómetrar, en
undurfögur og hin þokkalegasta laxveiðiá. Þar veiðast þetta 80 til 180 laxar
á sumri á þrjár stangir og er það allt að koma á land
frá miðjum júlí.
Saman við veiðast yfirleitt 100 til 250 sjóbirtingar, þannig að
síðsumars og fram á haust er býsna líflegt á þessum
slóðum.
Vegna mikilla seiðasleppinga undanfarin ár
hefur laxveiði aukist mjög mikið.
Vatsá er nú í eigu
svisslendings Rudolph Lamprecht.
Gott veiðihús er við ána.
Sjá:
Lokatölur síðustu ára.
 |