|
Í Svarfaðardalsá er mikil og góð sjóbleikjuveiði, slangur af urriða og einstaka
lax. Bleikjan er væn og veiðisvæðin eru fimm með tveimur stöngum hvert.
Áin er vinsæl og það þarf að panta
veiðileyfin með fyrirvara.
Upplýsingar í næsta Ferðakaffi eða hjá
Norðurferðum. Óshólmasvæði
árinnar er friðland, sem er mjög vinsælt meðal fuglaskoðara og annarra, sem vilja
njóta friðsældar og fegurðar svæðisins. Gistimöguleikar eru allmargir eins og sést
í ferðavísinum fyrir Dalvík. |