|
Skriðuvatn er í Skriðdalshreppi. Það er 1,25 km², dýpst 10 m og
er í 155 m hæð yfir sjó. Öxará og Vatnsdalsá renna til þess og úr því fellur
Múlaá, sem sameinast Geitdalsá úr Norðurdal og eftir það heitir áin Grímsá.
Hringvegurinn nr. 1 liggur meðfram því endilöngu.
Allmikið af urriða er í vatninu, allt upp í 5 pund. Veiðistaðir eru margir og
fjöldi stanga er ekki takmarkaður. Netaveiði er ekki leyfð, þótt hún yrði líklega
til verulegra bóta.
Leyfilegt er að veiða á milli kl. 8.00 til
kl. 22.00.
Veiði er heimil frá 1. júní til 31. ágúst.
Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðivörður / umsjónarmaður:
Bragi
Björgvinsson á Víðilæk, Ívar Björgvinsson á Djúpavogi og
Laufey Sólmundsdóttir, Vatnsskógum í Skriðdal
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 648 km og 50 km frá Egilsstöðum.
 |