|
Þetta er afburðagóð, þriggja stanga sjóbleikjuá í Skálmarfirði á
Barðaströnd. Veiðihúsið er gamalt eyðibýli og veiðin nær allt að 700 bleikjum á
aðeins sex vikum. Ármenn leigja ána síðustu dagana í júlí og allan ágúst.
Hinn hluti veiðitímans er ekki seldur,
heldur nýta eigendur árinnar hann sjálfir. Pétur Pétursson á þetta svæði ásamt
öðrum. Gömul leið liggur upp úr Skálmardal um Skálmardalsheiði til
Ísafjarðardjúps. Það þótti svo landgott í dalnum, að kindur, sem voru
hálfdauðar úr hor eftir veturinn, lifnuðu snarlega við á vorin, þegar þeim var
sleppt á beit. Við Skálmarfjörð voru fyrrum þýzkir verzlunarstaðir á Langeyri og
Sigurðareyri. |