|
Hvammstangi
við Miðfjörð er eina kauptúnið í Vestur-Húnavatssýslu, aðeins 7 km frá
hringveginum. Íbúarnir annast þjónustu við nágrannabyggðarlögin og
bændur í héraðinu. Ásamt náttúruskoðun almennt, er lögð mikil áherzla á
sela- og fuglaskoðun. Sívaxandi fjöldi ferðamanna staldrar við á
Hvammstanga til að njóta fagurrar og friðsællar náttúru Vatnsnessins,
sem er ekki eins langt úr alfaraleið og margir halda. Ferð um Vatnsnes
ber fortíðinni og náttúruöflunum þögult vitni.
Það er stutt á fiskimiðin frá Hvammstanga
og umhverfið svíkur engan. Báturinn er sérbúinn til sjóstangaveiði og
skoðunarferða, veiðiáhöld eru um borð. Aflinn er
eign veiðimannanna og það er hægt að grilla hann að veiði lokinni.
Sími: 451-2394 /
865-6072
sogho@simnet.is
www.aki.is |