|
Sandvatn
er í Tunguhreppi í N.-Múlasýslu. Það er 2,6 km², grunnt og í 569 m hæð
yfir sjó. Sandá rennur í það úr Álftavatni alllangt uppi á heiði.
Rangá fellur úr því til Lagarfljóts. Hún
er með bestu silungsám Austurlands. Vegasamband er ekkert við vatnið
og gönguleið nokkuð löng.
Vatnið er á Bótarheiði, sem er nokkuð há og gróðurlítil. Nokkuð væn
bleikja er í vatninu. Seiðum var sleppt í vatnið fyrir alllöngu síðan
án þess að menn vissu, hvort þar væri fiskur fyrir. Stangafjöldi er
ekki takmarkaður.
Vegalengdin frá Reykjavík er 671 km um Hvalfjarðargöng og 15 km frá
Egilsstöðum (innifalin 6 km gönguleið). |