|
Reykjarfjarðará er í Árneshreppi, Strandasýslu. Lítið
vatnsfall og er skammt að komin úr hálendinu fyrir ofan, fer svo eftir
Reykjarfjarðardalnum til sjávar í botni Reykjafarðar. Dalurinn gróinn og stórbrotin
fjallasýn og mjög fagurt meðfram ánni. Reykjarfjarðarfjall gnæfir yfir að norðan,
en allmikið lægra að sunnan. Þjóðvegur liggur yfir
ána neðanverða og áfram til Gjögurs og fyrir Reykjanes
til Ingólfsfjarðar.
Ágæt veiði hefur verið í Reykjafjarðará en
veiðin er allvæn sjóbleikja. Vegalengdin frá Reykjavík er um 400 km (42 km
styttri um Hvalfjarðargöng) og u.þ.b. 85 km frá Hólmavík og örskammt frá
Hótel Djúpavík. |