|
Nykurvatn, 0,7 km², er uppi frá byggðum Vopnafjarðar. Það er
talið nokkuð djúpt og það liggur 424 m yfir sjó. Frárennsli þess er Teigará, sem
fellur til Hofsár.
Vatnið er við þjóðveg nr. 85 á
Vopnafjarðarheiði eins og Þuríðarvatn, sem er rétt hjá. Mólendi er við vatnið og
allmikið er þar af fiski, eingöngu ½-5 punda vatnableikja. Nykurinn, sem vatnið
heitir eftir, sást annað veifið á beit á vatnsbakkanum fyrir löngu síðan. Engum
tókst að fanga þennan vatnahest.
Vegalengdin frá Reykjavík er 593 km um
Hvalfjarðargöng og 23 km frá
Vopnafirði.
 |