|
Kemur úr Langavatni og Kringluvatni, vatnslítil á, sem fellur
í Laxá í Aðaldal neðanverða. Þetta er góð laxveiðiá sem gefur þetta
á bilinu 150 til 350 laxa á sumri á þrjár stangir, en hefur náð tæplega 500 löxum,
þegar best hefur gengið. Stangaveiðimenn á Dalvík hafa lengi haft ána á leigu.
Frá og með byrjun veiðitíma
2011 taka nýir leigutakar við Mýrarkvíslinni. Félag sitt
kalla þeir "Salmon tails" og hafa gert samning um ána
fram til loka veiðitímans 2017. Forsvarsmaður þeirra er
Elías Blöndal Guðjónsson, lögfræðingur.
Lokatölur
um laxveið

|