|
Er í Miðdölum í Dalasýslu, skammt vestan Búðadals. Er áin
á vinstri hönd er ekið er til norðurs lokakafla Bröttubrekku. Miðá er dágott
vatnsfall er neðar dregur, en hún safnast úr mörgum lækjum og smáám, sem koma úr
ótal hliðardölum og giljum. Miðá er með þekktari sjóbleikjuám landsins og fyrir
nokkrum árum var þar prýðisgóð laxveiði.
Áin var þá seld sem laxveiðiá með
sjóbleikju í bónus. Nú er það öfugt. Veitt er með þremur stöngum í Miðá og
síðustu sumur hafa veiðst 40 til 60 laxar og 400 til 600 bleikjur. Vondur húsakostur
hefur dregið úr vinsældum Miðár síðustu sumur, en síðan 1998 stendur þar nýtt og glæsilegt veiðihús með
öllum helsta búnaði. Menn hugsa þó um sig sjálfir.
Lokatölur um laxveið
 |