|
Matbrunnavötn eru í Jökuldalshreppi í N-Múlasýslu. Þau eru tvö
og nokkur spölur á milli þeirra. Samanlögð stærð þeirra er 1,22 km² og þau eru
í 562 m hæð yfir sjó. Lækur rennur á milli þeirra og frá þeim kemur Fiskidalsá,
sem heitir Reykjaá neðar og fellur í Jökulsá á Brú. Áður en akfær vegur var
lagður að Brú á Jökuldal, var lagfærð braut yfir Jökuldalsheiði frá vegi yfir
Möðrudalsfjallgarð, sem nú er hringvegurinn.
Þessi
braut liggur með Sænautavatni og Ánavatni til Brúar. Frá henni er hægt
að komast á jeppa til Matbrunnavatna. Nafnið gefur til
kynna, að ekki hafi verið bjargarlaust við vötnin. Í þeim er falleg bleikja.
Fjöldi stanga er ekki takmarkaður. Netaveiði var stunduð í þeim en nú eru
þau lítið nýtt. Vegalengdin frá Reykjavík um Norðurland er 583 km um
Hvlafjarðargöng)og rúmlega 100 km frá Egilsstöðum. |