|
Þessi
á á norðvestanverðu Langanesi er í u.þ.b. 10 mínútna
akstursfjarlægð frá Þórshöfn.
Hún er veidd með fjórum stöngum og vænn birtingur eða sjóbleikja
dregin á land. Ósinn
er fremur lítill en gjöfull og ofan hans rennur áin um engjar og tún
á tveggja kílómetra kafla.
Fuglalíf
er áhugavert og umhverfið er vel fallið til skemmtilegra gönguferða.
Veiðimönnum er heimilt að taka út veiðistundirnar 12 hvenær
sem er sólarhringsins, þannig að þeir geta notið ógleymanlegrar
stemmningar miðnætursólarinnar, ef þeir kjósa.
Íslenska Fluguveiðiþjónustan er með ánna á leigu.
Einungis má veiða á flugu í
efri hluta árinnar þ.e. fyrir ofan sjávarlón.
Fjórar
stangir eru leyfðar á tveimur veiðisvæðum ofan og neðan sjávarlóns.
Skrá skal veidda fiska í veiðibók. Skrá skal hvar þeir veiðast og hvaða
agn er notað, kyn og áætluð lengd og þyngd.
Umsjónarmenn Lónsár eru Mirjam og Sverrir Ytra-Lóni. |