|
Ljósalandsvatn telst til Vopnafjarðarhrepps en mun vera á mörkum
hans og Skeggjastaðahrepps. það er 0,41 km², grunnt og í 244 m hæð yfir sjó.
Stórilækur rennur úr því suður til
Vopnafjarðar. Frá þjóðveginum liggur vegur, fær öllum bílum, að vatninu. Mikið
er af smárri bleikju í vatninu. Fjöldi stanga er ekki takmarkaður. Netaveiðitilraun
leiddi í ljós, að vatnið er ofsetið og þar þyrfti að grisja.
Vegalengdin frá Reykjavík er 643 km um
Hvalfjarðargöng og 17 km frá Vopnafirði. |