Sýrlækur er spræna, sem rennur í Jónskvísl og saman renna þær í Grenlæk.Þarna er veitt allvel af sjóbirtingi á
tvær stangir á dag. Nokkrar jarðir, þ.á.m. Arnardrangur, Fossar og Eystra-Hraun (eða
Ytra-Hraun) selja veiðileyfi hver fyrir sig. Umhverfið er gróið og vinalegt og
veiðistaðir eru aðgengilegir. Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 285 km og 12 km
fráKlaustri.