|
Þetta
er sex stanga svæði frá og með 2.
júlí, aðallega sem laxveiðisvæði þó að silungur veiðist
áfram út allt sumarið. Um er að ræða Fögruhlíðará ofan
þjóðvegar ásamt neðri hluta Jöklu frá Jökuldal en til
svæðisins teljast Kaldá, Laxá og Fossá sem renna í Jöklu úr
norðri og Hnefilsdalsá sem kemur að sunnan. Þetta er
gríðarlega mikið og fjölbreytt svæði þar sem veitt er í
miklu vatni í Jöklu og allt niður í litlar og nettar ár eins
og Laxá. Sú breyting verður þó núna að Fögruhlíðará neðan
brúar verður sérsvæði og fellur Fögruhlíðarós því út úr
Jöklupakkanum eftir 1. júlí.
Samtals er svæðið um 50 km langt og því verður afar rúmt um
veiðimenn og miklir möguleikar á því að kanna ótroðnar
slóðir. Þó er góð aðkoma að mörgum veiðistöðum og ekki þörf
á að ganga langar vegalengdir víðast hvar. Eingöngu er leyfð
fluguveiði frá miðjum júlí og þar til síðla í ágúst enda
hentar svæðið ákaflega vel til þess. Skylt er að sleppa
öllum hrygnum 65 cm og stærri og æskilegt að sleppa öllum
hrygnum eða setja í klakkistur sem eru á nokkrum stöðum við
árnar. Seiðasleppingar hafa heppnast ágætlega hingað til og
gefur það góðar vonir um áframhaldandi aukningu í laxveiði
um ókomna framtíð.
Sjá:
Lokatölur síðustu ára.
Veiðifálagið Strengir sjá um sölu veiðileyfa
 |