|
Þar er dálítil stangaveiði á gömlum netaveiðisvæðum, enda er
allri netaveiði á megingöngutíma laxins lokið. Fjöldi stanga er leyfður og svæðin
mörg en bestu veiðistaðirnir eru Brennan þar sem Þverá
sameinast Hvítá, Straumar, vatnamót Norðurár,
Svarthöfði,
þar sem Flókadalsá og Reykjadalsá renna í Hvíta og
Skuggi ármót
Grímsár.
Þarna er hægt að reka
í góða veiði, einkum þegar laxinn er að ganga hvað harðast, s.s. í júlí.
Hvítá er annars mikið fljót sem kemur upp ofan
byggða, m.a. úr Langjökli. Í hana renna margar þekktar laxveiðiár og
Borgarfjörðurinn er mesta laxveiðihérað landsins.
Lokatölur um laxveið.
Hvítá í Borgarfirði er 10. lengsta á landsins 117 km.

Svarthöði:
er
stangaveiðistaður í Hvítá í Borgarfirði. Hann er niður af ósum
Flókadals- og Reykjadalsár, þar sem þær renna í Hvítá.

Skuggi:
er stangaveiðistaður í Hvítá í Borgarfirði strax neðan við ósinn
þar sem Grímsá rennur í Hvíta.

Straumarnir:
eru stangaveiðistaður í Hvítá, niður frá
ármótunum þar sem Norðurá rennur Hvítá

Brennan:
er stangaveiðistaður í Hvítá í
Borgarfirði, þar sem Þverá rennur í Hvíta. |