|
Hvalvatn er í Strandahreppi í Borgarfjarðarsýslu. Það
er 4,1 km², dýpst 180 m og í 378 m hæð yfir sjó. Það er talið annað dýpsta
stöðuvatn landsins á eftir Öskjuvatni. Útfall vatnsins er Botnsá, sem rennur til
Hvalfjarðar.
Skinnhúfuhöfði
(424m) er austan Hvalvatns. Akstursleiðin er úr Víðikerjum
á Uxahryggjavegi liggur að honum. Umhverfi vatnsins er fagurt og stórbrotið. Í vatninu er bleikja.
Rétt fyrir austan Hvalvatn eru Krókatjarnir. Þar er töluvert af bleikju, en sú veiði
tilheyrir Þingvallahreppi. Norðan í Hvalfelli er hellir, þar sem Arnes útileguþjófur bjó í
tvö ár.
Eigendur, Stóra Botn nýta
veiðina sjálfir og hafa ekki selt veiðileyfi
Vegalengdin frá Reykjavík er 75 km. |