|
Húnavatn er í Torfalækjar- og Sveinstaðahreppum í
A.-Húnavatnssýslu.
Hæð þess er jöfn sjávarmáli. Vatnsdalsá
kemur í það að sunnan, en útfallið er
úr norðurendanum til sjávar um Húnaós. Skammt frá ósnum kemur Laxá í Ásum
í vatnið. Mikill fiskur er í vatninu og gengur um það.
Mest er af sjóbleikju, 1-2 pund, og nokkuð er af
sjóbirtingi, sem getur orðið allvænn.
Lax gengur um vatnið til laxánna, sem í það
renna, en lítur sjaldan við beitu í vatninu. Eitthvað er af staðbundnum uppalningi í
vatninu. Bílfært er að vatninu og veiðihúsið Steinkot er við Vatnsdalsflóðið til afnota fyrir veiðimenn.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 295 km og 12 km
frá Blönduósi. |