|
Hrútsvatn er í Ása- og Djúpárhreppi í Rangárþingi. Stærðin er
2,2 km², hæð yfir sjó 3,5 m og mesta dýpi 1,5 m. Það gruggast mjög í hvassviðri.
Afrennslið er skurður frá 1910 til Þverlækjar og Andalækjar, sem rennur til
Frakkavatns.
Þjóðvegur 275 liggur rétt hjá Hrútsvatni, en
mýrlendi liggur að vatninu á þrjá vegu. Nokkuð er af smáum urriða og bleikju í
vatninu. Netaveiði hefur verið nokkur. Þjóðsagan segir, að í vatninu sé
mórauður hrútur, sem verður helzt vart á haustkvöldum, þegar vont veður er í
aðsigi.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 85 km og 30 km frá Selfossi. |