|
Þetta er þriggja stanga sjóbleikjuá með slangri af urriða og 10-20 laxa á sumri.
Hún gefur 5-600 bleikjur. Þar er þokkalegt veiðihús, kynt með gasi.
Stangaveiðifélag Keflavíkur leigir og selur.
Hrolleifsdalur gengur
suðaustur í Tröllaskagann frá Sléttuhlíð móts við bæinn Tjarnir. Þar eru
einu skógarleifar, sem finnast í Skagafirði. Hríslurnar þar voru
friðaðar snemma á 20. öld. Byggð er öll komin í eyði í dalnum.
Hrolleifur landnámsmaður var mikill kappi en óvinsæll. Hann varð m.a. Ingimundi gamla í Vatnsdal að bana eftir
að hann hafði skotið skjólshúsi yfir hann að afloknum öðrum vígum. |