|
Hraunhafnarvatn er í Presthólahreppi á Melrakkasléttu. Það er 3,4
km², dýpst 3 m og í 2 m hæð yfir sjó. Hraunhafnará rennur í suðurenda vatnsins og
frárennslið er um lágt eiði, sem kallast Hestamöl. Þjóðvegur nr. 85 liggur með
norðanverðu vatninu.
Mikill fiskur er í
vatninu, ½ punds bleikja og 1-4 punda urriði. Bleikjan er um allt vatn,
en urriðann er helzt að finna syðst við ósa Hraunhafnarár. Þangað verður
að fara á postulunum.
Netaveiði er stunduð í vatninu til að reyna að halda
stofninum í jafnvægi.
Heimilt er að veiða frá 1. maí og fram til 30. september.
Allt löglegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Heimilt er að veiða allan sólarhringinn.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum:
Halldór Þórólfsson S: 863-8468.
Vegalengdin frá Reykjavík er 644 km um
Hvalfjarðargöng og 10 km frá Raufarhöfn.
 |