|
Hálendisvötnin á Íslandi eru óteljandi. Sum
þeirra eru tengd mismunandi löngum ám. Í flestum þessara vatna er urmull af punda
silungi. Það er líka hægt að krækja í stóran silung í hálendisánum. Helstu
veiðisvæðin á hálendinu eru Veiðivötn, Fjallabak við landmannaleið,
Skaftártunguafréttur, Auðkúluheiði, Eyvindarstaðaheiði og Arnarvatnsheiði.
Það er ekki hægt að komast að sumum
þessara veiðivatna nema í fjórhjóladrifnum bílum og sums staðar verður að leggja
land undir fót til að komast í tæri við bleikjuna og urriðann. Veiðivötn á
annesjum norðanlands og annars staðar nær byggðu bóli eru talin með vötnum í
byggð, s.s. á Skaga og Melrakkasléttu. |