|
Gunnvararvatn er Sauðaneshreppi í N-Þingeyjarsýslu. Það er 0,08
km² og í 19 m hæð yfir sjó. Lækur fellur úr því til Eiðisvatns. Vegurinn til
Eiðis liggur fram hjá Gunnvararvatni og slóð er á milli vatnanna til eyðibýlis
sunnan Eiðisvatns.
Vatnið er í skarði milli fjalla í grónu umhverfi.
Útsýni er fagurt yfir Eiðisvatn til hafs. Talsverður fiskur er í þessu vatni og
góður. Þetta er uppalningur, ekki úr sjó kominn, bæði urriði og bleikja.
Stangafjöldi er ekki takmarkaður og netaveiði er eitthvað stunduð í vatninu.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 646 km um Hvalfjarðargöng)og 17
frá Þórshöfn.
 |