|
Fögruhlíðará
og Fögruhlíðarós er austast í Jökulsárhlíð og tilheyrir Ketilstöðum.
Þarna er fagurt umhverfi og vegaslóði liggur að ánni frá þjóðveginum,
þar sem hann sveigir upp á Hellisheiði.
Áin kemur upp inni á öræfum, en er fiskgeng að fossum miklum, um það
bil 10-12 km frá sjó. Áin er lítið þekkt og stunduð og liðast
að mestu lygn um gróinn dalinn. Mikið gengur af sjóbleikju
í ána og Fögruhlíðarós er þekktur sjóbleikjustaður. Þar byrjar bleikja að ganga inn um
mánaðamót maí og júní og framan af júlí getur verið mikið fjör í
ósnum, þegar göngurnar koma inn á flóðinu.
Bjarnarey blasir við frá landi.
Káldá er minna
þekkt sem veiðiá, enda engin skipulögð veiði verið stunduð þar
fram að þessu en í Kaldá er bæði lax og vænar bleikjur.
Fögruhlíðará ásamt
Fögruhlíðarós, og Kaldá, eru
seldar saman enda örstutt á milli þeirra og einungis verða fjórar
stangir leyfðar samtals í þeim báðum . Ósinn er oftast veiddur af sandinum
að sunnanverðu, en þó er vel hægt að standa á klöppum undir hlíðinni
að norðan. Mikil náttúrufegurð er við flóann, fuglalíf mikið og
auk þess leyfilegt eftir samkomulagi að veiða á nóttunni, standi þannig
á sjávarföllum, og er haft fyrir satt að það sé kyngimagnað að
standa við Fögruhlíðarós á sumarnóttu og draga sjóbleikjur.
Veiðifálagið Strengir sjá um sölu veiðileyfa

Fögruhlíðará

Kaldá

Jökla |