|
Hin eina sanna Landmannaleið liggur á milli Landsveitar og
Skaftártungu um Dómadal. Þetta er einn fegursti og litskrúðugasti fjallvegur
landsins, sem er akfær flestum bílum í þurrkatíð á sumrin.
Skaftfellingar kalla þessa leið Fjallabak og telja það nafn eldra og því
réttara. Það er ótrúleg fiskmergð í flestum þessara
vatna og undanfarna áratugi hefur verið unnið markvisst að grisjun
sumra þeirra.
Fiskurinn úr þeim getur verið allstór og er afarljúffengur, hvernig sem hann er
matreiddur. Miðvegur eða Syðri-Fjallabaksleið liggur á milli
Rangárvalla og Skaftártungu um Mælifellssand norðan Mýrdalsjökuls. Þessi fjallvegur
er aðeins fær jeppum og er gjörólíkur Landmannaleið, bæði auðnarlegri og
litfátækari en engu að síður tignarlegur.
.
Mikilvægt er að veiðimenn
skili útfylltum veiðiskýrslum til skálavarðar í
Landmannahelli, eða í póstkassa sem staðsettur er við
krossgötur þar sem farið er inn að Ljótapolli.
Einnig er við Landmannahelli svæði fyrir tjöld,
fellihýsi og húsbíla, smáhýsi með hreinlætisaðstöðu,
útigrill og veiðileyfasala.
|