|
Safnast saman úr ýmsum
lækjum og sprænum í fjöllum og giljum upp af Brynjudal í Hvalfirði og
Sandvatni (410m; 0,23 km²) vestan Botnssúlna og fellur til sjávar í
Brynjudalsvog. Þetta er
vatnslítil á sem þó heldur furðu jöfnu rennsli þótt þurrkar og snjóleysi herji.
Veitt er á tvær stangir í ánni og hefur lengst af verið veitt nær eingöngu neðan
Bárðarfoss og eru þá aðeins um 300 metrar til sjávar. Um kílómeter ofar er síðan
Efrifoss og fáeinir hyljir á milli fossa.
Laxastigi í Bárðarfossi er erfiður en fær löxum. Eigi alls fyrir löngu var hann hins vegar lagaður.
Stigi í Efrifossi var lengst af
ónothæfur, en í fyrra var svo lappað upp á hann og síðsumars 1997 sást talsvert af
laxi þar fyrir ofan. Því var fylgt eftir með gönguseiðasleppingum sem eiga að skila
sér 1998 og því má búast við að
veiðisvæðið lengist nú til muna og áin standi mun betur en fyrr undir tveimur
dagsstöngum.Sjá:
Lokatölur um laxveiði
 |