|
Bjarnarfjarðará
er í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu. Áin er fremur stutt,
en til hennar falla ár miklu lengra komnar, Sunnudalsá og
Goðdalsá, sem eru nokkuð langt að komnar miðað við ár á
Vestfjarðakjálkanum.
Eftir að þessar ár hafa sameinast bera þær nafnið
Bjarnarfjarðará. Vel er gróið meðfram ánni og gott að komast
að veiðistöðum. Í ánni er sjóbleikja og veiðin oft ágæt.
Einnig verður stundum vart við lax, en þá helst við eða í
Goðdalsá. Veiðistaðir eru margir og hafa verið leyfðar 4
stangir á dag.
Leyfilegt agn
er fluga, maðkur og spúnn.
Vegalengdin frá Reykjavík er um 303 km um Hvalfjarðargöng og
u.þ.b. 30 km frá Hólmavík.
 |