Bakkavatn er í Skeggjastaðahreppi í N-Múlasýslu. Það er 0,33
km², grunnt og í 241 m hæð yfir sjó. Lækur rennur úr því norður til Hölknár.
Þjóðvegurinn (85) liggur skammt vestan
vatnsins.
Stór og góð bleikja er í vatninu. Stangafjöldi er ótakmarkaður. Netaveiði er
fremur lítið stunduð í vatninu.
Vegalengdin frá Reykjavík er 656 km
um Hvalfjarðargöng) og 30 km frá Vopnafirði.