|

Leiðir
að vötnum á þessum heiðum liggja upp úr nokkrum dölum á Norðurlandi,
Vatnsdal, Blöndudal og Svartárdal í Húnaþingi og Mælifellsdal og
Vesturdal í Skagafjarðarsýslu. Leiðin upp á Grímstunguheiði (722) um
Vatnsdal verður að jeppaslóða og tengist Kjalvegi um Stórasandsleið
inn á Auðkúluheiði. Leiðin upp á Auðkúluheiði um Blöndudal er öllum
bílum fær eftir uppbyggðum vegi Landsvirkjunar (731, 732 og F37) fram
hjá
Blönduvirkjun.
Sé ekið
áfram suður og sveigt til hægri skammt norðan Geirsöldi á Kili, er
hægt að komast jeppaleið yfir Blöndu á vaði inn á Eyvindarstaðaheiði.
Leiðin frá þjóðvegi nr. 1 upp á Eyvindarstaðaheiði liggur um Vesturdal
(751, 752 og F72) að Ásbjarnarvötnum og Laugafelli.
Auðkúluheiði: Friðmundarvötn.
Grímstunguheiði: Þórarinsvatn,
Svínavatn, Galtarvat og Refkelsvatn.
Heiðavötn sunnan Skagafjarðar: Ásbjarnarvötn, Reyðarvötn, Urðarvötn
og Aðalmannsvatn.
.
|