|
Ásbjarnarvötn eru í Lýtingsstaðahreppi í
Skagafjarðarsýslu. Þau eru skammt norðan Hofsjökuls og tilheyra Hofsafrétti. Þau
eru 1,2 km², fremur grunn og í 776 m hæð yfir sjó, með hæstliggjandi vötnum
landsins. Frárennsli þeirra er Hraunþúfnaá norður til Hofsár. Norðan vatnanna
liggur hinn forni Eyfirðingavegur. Hann er ekki akfær en tiltölulega auðvelt er að
komast á flestum farartækjum að vötnunum. Vegurinn
að vötnunum er yfirleitt ekki opnaður fyrr en í byrjun júlí.
Umhverfið er að mestu melar og lágir ásar og rýrir
grasteigingar á vatnsbökkunum. Ásbjarnarhnjúkur og Ásbjarnarfell rísa í
suðvestri með Hofsjökul í baksýn. Mikið er af bleikju í vötnunum.
Hún er 0,5-1 pund og hefur verið óbreytt
síðan 1995. Bezti veiðtíminn er í júní og júlí.
Fjöldi stanga er ótakmarkaður. Netaveiði
var stunduð á árunum
1995-2002 og virtist ekki hafa áhrif á stærð eða magn
fisksins
Vegalengdin frá Reykjavík um Kjalveg, austur yfir
Blöndu o.fl. kvíslar (jeppafær leið), er u.þ.b. 235 km og 432 um Varmahlíð og
Goðdali.
Veiðiréttur í vötnunum tilheyrir Hofi í
Vesturárdal. Veiðileyfi fást hjá Borgþóri Borgarssyni
eða Guðrúnu Björk Baldursdóttur á Hofsvöllum í Vesturárdal.
Heimild: Bjarni Ragnar Brynjólfsson. |