|

Arnarvatn hið stóra er í 540 m hæð yfir sjó, 4,3 km²,
alldjúpt og vogskorið. Við eina aðalvíkina, Sesseljuvík áttu
Húsfellingar veiðistöð. Úr henni fellur Austurá. Hólmavík
heitir suðausturhluti vatnsins og í hana fellur Skammá úr
Réttarvatni. Norðausturflóinn heitir Atlavík. Það er mikið
af bleikju og urriða í vatninu en eins og jafnan veiða menn
mismikið. Veiðileyfin gilda á öllu svæðinu og í efsta hluta
Austurár. U.þ.b. þriðjungur aflans er urriði. Best er að
renna á morgnana og kvöldin. Tjaldstæði eru víða ágæt
við og gisting í skála og sumarhúsum eru við
vatnið. Vegurinn frá Laugarbakka er fær flestum aldrifsbílum og
leiðin frá Kalmanstungu í Borgarfirði er erfið í
vætu. Það er ekki hægt að aka meðfram vatninu.Flugvöllur er merktur
sunnan Sesseljuvíkur.
Arnarvatn var snemma frægt í sögunni fyrir mikla veiði
og þar höfðust oft við útlagar. Grettistangi gengur út í vatnið að
norðaustan.
Þar eru kofarústir, sem vert er að skoða.
Svartarhæð (593m) er allstór hæð
sunnan Arnarvatns stóra. Sumir telja hana ná alla leið
suður að Krókavatni, en aðrir segja nafnið aðeins ná yfir
hlutann næst Arnarvatni. Hæðin er lítt gróin, aðeins
sést í nokkrar mosaþembur. Leggjarbrjótstjarnirnar
fjórar eru vestan hennar og Leggjarbrjótslækur rennur frá
þeim.
Vegalengdin um Laugarbakka frá Reykjavík er u.þ.b. 232 km um
Hvalfjarðargöng og 55 km frá Laugarbakka. Sé ekið um Kaldadal er vegalengdin u.þ.b.
200 km frá Reykjavík.

Arnarvatnsheiði og Tvídægra:
www.arnarvatn.com
Frá Norðurlandi um Laugarbakka og
Víðidal
Veiðifélag Arnarvatnsheiðar og Tvídægru:
Arnarvatn Stóra Rafn Benediktsson 892-7576
Theodór Pálsson veiðivörður
S: 8430483
Eiríkur Pálsson
veiðivörður
S: 8932449
2011
- Veiðileyfi til 15 júlí.
4.500 kr pr dag.
- Veiðileyfi frá 15 júlí
3.300 kr pr dag.
- Veiðileyfi frítt
fyrir 14 ára og yngri (ferming)
- Gisting
2.000 kr
pr mann á sólarhring í stóra skála
- Dísarbúð 12.200
kr á sólarhring
- Litlu hús 6.800
kr á sólarhring
- Gjald fyrir hest í hólfi
575 kr sólarhring, með heyi.
- Gjald fyrir bát
875 kr pr klst.
|