|
Álftavatn er í Soginu á mörkum Grafningshrepps og Grímsness.
Það er 2,2 km², dýpst 2 m og í 15 m hæð yfir sjó. Vegir liggja að vatninu frá
báðum hliðum.
Þar er góð sjóbleikja, 1-6 pund og vænn
sjóbirtingur. Lax fer um vatnið en hann veiðist lítið eða ekki. Ekki hefur netum
verið dýft í vatnið lengi. Vað er á vatninu, þar sem Álftavað heitir. Það var
eina vaðið á Soginu og mjög fjölfarið áður en brýr komu til. Það þótti
allgott, þótt breitt sé. Botninn er góður og það er ekki dýpra en svo, að þar
fóru lestir yfir með ull og kornvöru og annan varning, sem mátti ekki blotna.
Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 70 km.

|