|
Mælifellshnjúkur
er sunnan Mælifells, þekkts prestseturs. Hnjúkurinn er
mjög áberandi, því hann er hærri en öll nærliggjandi fjöll
og sést úr 10 sýslum. Því má vera ljóst, að fjallganga
gefur kost á miklu víðsýni. Fjallið er úr móbergi og
þar finnst einnig svolítið af bólstrabergi. Fjallið er
líklega jafngamalt Þórðarhöfða og öðrum fjöllum við
norðanverðan Skagafjörð.
Fornleiðin yfir Kjöl lá um Mælifellsdal, vestan hnjúksins.
Þaðan lá líka leið um Stórasand og Kaldadal (160 km; þriggja
daga ferð). |