|
Eilífsdalur gengur suður að
hátindi Esju (914m) úr Kjósinni. Samnefndt býli er í
mynni hans. Helgi bjóla fékk Eilífi, skipverja sínum,
bústað þar. Mælt er, að Eilífur hafi verið heygður á
Eilífstindi, ofan bæjar. Utan dalsins er keilulagaður
og friðlýstur Orrustuhóll. Kjalnesingasaga segir, að
Bræðurnir Helgi og Vakur Arngrímssynir í Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd hafi veitt Búa Andríðarsyni eftirför við
12 mann, en Búi hafði einn til fylgdar á leið til skips í
Hrútafirði. Búi sá eftirförina og bjó um síg á hólnum
og safnaði að sér grjóti meðan tími vannst til. Hann
lét það dynja á fjendunum og tók svo til vopna. Hann
drap sex og særði hina áður en Eilífur bóndi kom og skakkaði
leikinn. Þá var Búi enn þá ósár. |