|
Selfoss er
landnámsjörð Þóris Hersis Ásasonar. Selfosskaupstaður við Ölfusá, sunnan Igólfsfjalls, fór að byggjast
árið 1891, þegar hengibrú var lögð yfir ána en
hún hrundi árið 1944. Þá var
gerð ný brú, sem hefur staðið síðan. Byggðin
styrktist mjög upp úr 1930, þegar Kaupfélag Árnesinga
og Mjólkurbú Flóamanna hófu starfsemi sína. Selfoss, sem nefndur hefur
verið höfuðstaður Suðurlands, fékk kaupstaðarréttindi árið 1978. Bæjarbúar
byggja afkomu sína á þjónustu við nærsveitirnar,
ýmsum iðnaði og ferðaþjónustu. Ölfusá heitir áin
neðan ármóta Sogs og Hvítár í Grímsnesi. Þær eru báðar góðar laxveiðiár og
sama er að segja um Ölfusá. Veiði í öðrum ám og vötnum í nágrenninu er
einnig góð. Margir áhugaverðir staðir eru í nærsveitum Selfoss. Grímsnes
og Þrastarskógur eru einhverjar stærstu sumarbústaðabyggðir landsins.
Árið 1998 varð sveitarfélagið Árborg til við sameiningu
Selfoss, Sandvíkurhrepps, Stokkseyrar og Eyrarbakka.
Við Sogið eru þrjár
virkjanir en áin, affall Þingvallavatns, er stærsta og vatnsmesta bergvatnsá
landsins , 19 km löng. Öll þjónusta fyrir ferðamenn er veitt á Selfossi,
enda stöðugur straumur þeirra þar árið um kring,
ekki sízt vegna þess, að þjóðvegur nr.1 liggur í
gegnum bæinn.
Vegalendin frá Reykjavík er 57 km.
Gullfoss um
Skeið 71 km.
Hella 36 km,
<Selfoss>
Hveragerði 12 km,
Eyrarbakki 13 km.
|