|
Reykjavík er höfuðborg Íslands með u.þ.b.
37,3%% af íbúum
landsins. Eins og í öðrum höfuðborgum sitja stjórnvöld landsins í Reykjavík og
flestar opinberar stofnanir og öll ráðuneyti. Alþingi hefur
aðsetur sitt í Reykjavík en það er talið elzta þjóðþing heims. Alla félagslega
þjónustu er hér að finna sem og alla aðra þjónustu, sem býðst á landinu. Þó svo
að borgin nái yfir mikið landsvæði (242 km²) er stutt í óspillta náttúru og í
gegnum borgina renna Elliðaárnar, sem
voru oft með beztu laxveiðiám landsins og er
gjarnan rennt fyrir lax undir brúnum á ánum meðan hraðbrautarumferð geisist þar
yfir. Fyrsti landsnámsmaður Íslands, Ingólfur Arnason, varpaði öndvegissúlum sínum
fyrir borð á skipi sínu, þegar hann nálgaðist suðurströnd landsins árið 874 og
hét því að setjast þar að þar sem þær bæri að landi.
Hann fann þær í Reykjavík og þar settist hann
að og hefur verið
byggð þar síðan. Ingólfur og lið hans sáu hvar „reykur” stóð úr jörðu skammt
frá stað þeim, sem öndvegissúlurnar fundust, og því var víkin nefnd
„Reykjavík”. Um jarðhita hefur þó verið að ræða enda er mikið um
jarðhitasvæði í og undir Reykjavík sem borgarbúar njóta góðs af.
Þingvellir 49 km,
Selfoss
57 km, <Reykjavík>
Borgarnes 74 km,
Keflavík
54 km,
Grindavík
52 km.
.
|