|
Reykholt í Reykholtsdal er einhver
merkasti sögustaður landsins, ekki sízt vegna
búsetu Snorra Sturlusonar, sem margir telja merkasta skáld, rithöfund og fræðimann Íslands,
en Snorri bjó þar á árunum 1206-1241. Reykholt
var skólasetur áratugum saman og þykir merkur kirkjustaður.
Náttúrufegurð er þar mikil og jarðhiti er víða í
Reykholtsdal, enda er dalurinn talinn stærsta lághitasvæða
landsins. Margt er að skoða í Reykholti, þ.á.m.
hina fornu Snorralaug, en frá henni liggja jarðgöng
til bæjar, og Snorrastofa, sem ætlað er að kynna verk Snorra
Sturlusonar. Fornleifarannsóknir
hafa verið stundaðar á staðnum, síðast 1998, 1999, 2000,
2001, 2002 og 2003 og margt
merkilegt komið í ljós.
Í nágrenni Reykholts er Deildartunguhver,
sem talinn er einn vatnsmesti hver í heimi.
Tiltölulega stutt er að aka frá Reykholti til
Húsafells og í Húsafellsskóg. Á
þeirri leið eru Hraunfossar og Barnafoss, sem þykja einstök náttúrsmíð.
Í Reykholti er þjónusta og
upplýsingar um sögu staðarins.
Borgarnes
37 um Hvítársíðu,
Bifröst 26 km
Húsafell
25 <Reykholt>
Þingvellir
90 km um
Kaldadal.
.
|