|
Patreksfjörður er syðstur Vestfjarða og kauptúnið
er utarlega við norðanverðan
fjörðinn. Íbúar hafa afkomu sína af sjávarútvegi og fiskvinnslu sem og þjónustu
við nágrannasveitir. Á staðnum sjálfum og í nágrenni er margt áhugavert að sjá.
Einstök náttúrufegurð er þar
allt í kring og ekki má missa af flug- og minjasafninu að Hnjóti, 25 km frá
Patreksfjarðarkauptúni, sem óhætt er að segja að sé einstakt í sinni röð.
Ýmis þjónusta stendur ferðamönnum til boða, bæði til sjós og lands. Má þar
t.d. nefna ferðir út á Látrabjarg o.m.fl.
Vegalengdin frá Reykjavík er
422 km um Hvalfjarðargöng.
Tálknafjörður
16 km
<Patreksfjörður>
Bíldudalur 28 km,
Flókalundur 61 km.
.
|