|
Eyjafjöll
eru meðal hærri fjalla landsins (1666m) og nafngjafi þeirra er
Vestmannaeyjar skammt undan ströndinni.
Þessi fjallgarður vestur úr fjallendi Mýrdalsjökuls er innan
eldvirkasta svæðis landsins og eldkeila hefur hlaðist upp, þar sem
annaðhvort tvo Guðnasteina (1666m og 1580m) eða Goðastein og Guðnastein
ber hæst á gígnum sunnan- og norðvestanverðum.
Menn eru ekki á eitt sáttir með nafngiftirnar.
Jökulhettan er talin vera hin sjötta stærsta hérlendis og ekki
lengur tengd Mýrdalsjökli á Fimmvörðuhálsi. Þaðan liggur góð gönguleið upp á hæstu bungu, einnig frá
Seljavöllum, Mörk, hátindaleið úr Stakkholti og upp úr Langanesi
hjá Grýtutindi og upp skerin í jöklinum norðvestanverðum.
Það telst ekki lengur til tíðinda, að menn skreppi akandi á
fjallajeppum og snjósleðum upp á hæstu bungur landsins en þessi var
eitt sinn sigraður á fólksbíl (lada).
20.03.10. Jafndægur að vori. Rétt fyrir
miðnættið hófst sprungugos (suðvestur-norðaustur) á Fimmvörðuhálsinum
norðanverðum, skammt vestan gönguleiðarinnar. Sprungan var
u.þ.b. hálfs kílómetra löng og náði ekki undir jökul. Því var
ekki óttast um flóð í kjölfarið. Íbúar svæðisins undir
Eyjafjöllum og í Fljótshlíð voru fluttir brott í öryggisskyni.
Þeir fengu þó að fara heim til að sinna skepnum 21.03.10. Vegum
var lokað um svæðin. Almannavarnarnefndir sátu á rökstólum um
framhald aðgerða. Hinn 22. marz rann hraun yfir gönguleiðina og
niður í Hrunagil, þannig að goslengd ræður því, hvenær hún verður
nothæf á ný. Hraunfossinn niður í Hrunagilið er rúmlega 200
metra hár og út úr því rennur hraunið í átt að Krossáraurum.
Mjög slæmt veður var á Suðurlandi 22. og aðfararnótt hins 23. marz,
þannig að náttúruvísindamenn komust ekki alveg að gosstöðvunum.
Hinn 23. marz var rætt um aðgengi ferðamanna að gosinu. Hinn 26.
marz fór hraun að flæða niður í Hvannárgil, þar sem nýr hraunfoss
myndaðist, og hélt áfram að renna niður í Hvannárgil í átt að Krossáraurum
í báðum tilfellum.
31.03.10. Um kl. 18:50 opnaðist gossprunga með nv-sa
stefnu
norðvestan nýja gígsins, nær Hvannárgili, vestan Heljarkambs.
Þaðan rann meira hraun niður í gilið. Virknin í fyrsta gígnum
hafði dregizt saman í tvo stróka í stað 12-15, sem fækkaði smám saman
í fimm og síðan færri. Björgunarsveitir og lögregla á staðnum
rýmdu svæðið við eldstöðvarnar, lét ferja göngufólk úr Þórsmörk og
Goðalandi niður á Morinsheiði og skipaði síðan brottflutning þaðan.
Leiðum inn í Þórsmörk var svo lokað. Daginn eftir var ferðabanni
aflétt, en hættusvæði var innan fimm kílómetra radíuss frá
gosstöðvunum og fólki var ekki hleypt nær þeim en í eins kílómetra
fjarlægð.
07.04.10. Gos hætti á upprunalegu sprungunni og var komið
niður í einn gíg (strók) í hinni yngri. Ekki var talið að
hraunrennsli hefði minnkað niður í Hvannárgil, en ekkert hraun rann
lengur niður í Hrunagil.
12.-13. apríl 2010. Engin merki um bráðna kviku í
eldstöðinni, sem myndaðist 31. marz. Annaðhvort er nú goshlé eða
goslok.
14. apríl 2010. Skömmu eftir miðnætti hófst gos í aðalgíg
(dyngju) Eyjafjalla og flóð hófst, aðallega til norðurs út í
Markarfljót, en einnig til suðurs, niður að Þorvaldseyri um Svaðbælisá.
Þjóðvegur 1 var rofinn við nýju Markarfljótsbrúna og vegaskemmdir eru
fyrirséðar vegna flóðsins í suðurátt undir Eyjafjöllum.
3. maí 2010. Síðustu daga hefur einn gígur verið virkur.
Hraun hefur runnið til norðurs, undir gígjökulinn og brætt hann smám
saman án stórflóða. Vatnshiti við gömlu Markarfljótsbrúna var
mældur milli 11°C og 17°C.
Þýzk könnunarflugvél flaug meðfram gosmekkinum til suðausturs, allt að
60°N til að mæla öskumagn og dreifingu. Askan náði upp að 20
þúsund fetum og þéttleiki hennar var talsverður og talið var að hún
gæti valdið truflunum á flugi. Flugvöllum var lokað í Skotlandi
og Írlandi (4.-5. maí).
Vísindamenn telja gosið nú öflugra en í upphafi, en öskudreifningin
muni ekki valda eins miklum truflunum vegna þess, að hún sé grófari.
23. maí 2010. Dregið hefur úr goskraftinum síðustu daga
og síðdegis, þegar Ómar Ragnarsson flaug yfir Eyjafjallajökul, sá hann
engin merki um gos. Síðar var staðfest, að gosið lægi niðri eða
því væri lokið.
Frá Skógum til Þórsmerkur er vinsæl gönguleið yfir Fimmvörðuháls.
Gönguleiðir á jöklinum liggja yfirleitt í
austur-vestur stefnu, þvert yfir hann milli Fimmvörðuháls og
Vestur-Eyjafjalla. Þær byggjast á ferðaáætlunum viðkomandi
göngumanna, sem eru vitaskuld búnir að skipuleggja þær í þaula áður en
haldið er af stað. Auk nauðsynlegs útbúnaðar verður að kanna
sprungusvæði á leiðunum með því að fá örugg hnit hjá kunnugum (4x4;
Fjallaleiðsögumenn; JÖRFI o.fl.).
Gosið í Eyjafjallajökli árin 1821-23. Trausti Jónsson.
Veðurstofa Íslands 16. apríl 2010.
Gosið í Eyjafjallajökli árið 1612 eða 1613. Trausti
Jónsson og Oddur Sigurðsson. Veðurstofa Íslands 29. apríl 2010. |