Hvammstangi,
[Flag of the United Kingdom]


Meira um Ísland


Gönguleiðir Ísland


Selasetur Íslands Hvammstanga


Kirkjur
Norðurland

Vegamyndavélar

HVAMMSTANGI
FERÐAVÍSIR

.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Hópferðamiðstöðin


Ferðaheimur

Hvammstangi við Miðfjörð er eina kauptúnið í Vestur-Húnavatssýslu, aðeins 7 km frá hringveginum.  Íbúarnir annast þjónustu við nágrannabyggðarlögin og bændur í héraðinu.  Þarna hefur verið verzlunarstaður síðan 1846.  Smám saman byggðist upp útgerð (aðallega rækja) og fiskverkun. Íbúarnir hafa sýnt mikinn dugnað við uppbyggingu fjölbreyttrar ferðaþjónustu, sem fer sívaxandi ár frá ári.  Ásamt náttúruskoðun almennt, er lögð mikil áherzla á sela- og fuglaskoðun.  Sívaxandi fjöldi ferðamanna staldrar við á Hvammstanga til að njóta fagurrar og friðsællar náttúru Vatnsnessins, sem er ekki eins langt úr alfaraleið og margir halda.  Ferð um Vatnsnes ber fortíðinni og náttúruöflunum þögult vitni.

Árið 2006 var Selasetur Íslands opnað við hátíðlega athöfn (26. júní) eftir mikið starf ósérhlífinna sjálfboðaliða og frumkvöðla.  Það er menningarauki fyrir gesti að líta þar inn.


Vegalengdin frá Reykjavík er 198 km um Hvalfjarðargöng.

Staðarskáli 34 km. <Hvammstangi> Laugarbakki 7 km, Blönduós  58 km.
.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM