Grindavík,

Meira um Ísland


Gönguleiðir Ísland

reykjavik by night.JPG (7293 bytes)
Áhugaverðir staðir á Suðvesturlandi

Ferðavísir Stangveiði Golfvellir .Reykjanesfólkvangur

GRINDAVÍK
FERÐAVÍSIR

.

.

Information in English


Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Grindavík er einn öflugasti útgerðarstaður landsins. Þar er mikil gróska í útgerð og fiskvinnslu sem veita íbúum og fjölda aðkomumanna atvinnu. Ferðaþjónusta er í örum vexti og verslun og léttari iðnaður þrífast vel. Í Grindavík er skrúðgarðurinn Sólarvé, rétt við sundlaugina, en hann er hlaðinn í fornum stíl og ber vitni horfinni menningu landsins.

Gamla kirkjan var reist árið 1909 (-1982), að mestu leyti úr efni kirkjunnar að Stað (1858). Hún var afhelguð 1982 og nýtt sem barnaheimili eftir 1988.  Nálægt henni er Krosshús, þar sem Halldór Laxnes skrifaði Sölku Völku, læknisbústaður Sigvalda Kaldalóns og Garðhús Einars G. Einarssonar, fyrsta kaupmanns Grindavíkur.

Strandhögg Tyrkja í Grindavík 1627 er vel þekkt meðal þjóðarinnar, en áður kom oft til ófriðsamlegara aðgerða, eins og þegar Íslendingar, Danir og Þjóðverjar sameinuðust gegn Englendingum árið 1532.

Hópsnes liggur innanvert milli Hraunsvíkur og Járngerðarstaðavíkur.  Austurhlutinn heitir Þorkötlustaðanes.  Vitinn þarna var reistur 1928.

Í Svartsengi við Grindavík er mikill jarðhiti og þar var reist öflugt orkuver, sem þjónar Suðurnesjum og er tengt landskerfinu. Affallsvatn frá orkuverinu myndar Bláa Lónið, sem var nýtt til baða áður en aðstaðan var færð í nútímahorf 1999.
Grindavík meira:

Þorlákshöfn (427/42) 55 km. <Grindavík> Reykjavík 52 km, Bláa lónið 4 km
.
.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM