|
Nyrzti hluti Vestfjarða er Hornstrandir, sem markast af Geirólfsgnúpi í austri og
nú eru vesturmörkin oftast miðuð við Rit vestan Aðalvíkur (áður Kögur).
Austur-Strandir eru austan Hornbjargs og Vestur-Strandir vestan þess. Allmikil byggð var
á Hornströndum fyrrum og fólkið þar var sérstakt fyrir siði og atvinnuhætti.
Öll byggð er horfin og bústaður
vitavarðarins við Látravík er líka tómur.
Hann var
mannaður
aftur 1999, þótt ekki væri um vitavörzlu að ræða á ný.
Ferðafélag Íslands hefur tekið við rekstri Hornbjargsvita af
þeim hjónum Ævari Sigdórssyni og Unu Lilju Eiríksdóttur. FÍ
gerir langtímasamning við Siglingastofnun um rekstur og
viðhald á húsum á svæðinu og mun um leið reka gistiþjónustu
fyrir ferðamenn á staðnum. undanfarin ár.
Vegleysur Hornstranda voru erfiðar íbúunum, einkum á vetrum, en núna
streyma ferðalangar þangað og njóta dýrlegs landslags og heilbrigðrar hreyfingar í
gönguferðum, sem hefjast gjarnan með bátsferð frá Ísafirði eða nyrztu byggðum
Stranda. Hornstrandir voru friðlýstar ásamt Aðalvík og Jökulfjörðum árið 1975. |