|
Eyrarbakki og Stokkseyri eru tvö sögufræg þorp við suðurströnd Árnessýslu.
Þar var áður mikið útræði og bátaútgerð til skamms tíma. Nokkur
fiskvinnslufyrirtæki eru í þorpunum og á Eyrarbakka var verksmiðjan Alpan, sem
framleiddi ýmsar vörur úr áli, þ.m.t. potta og pönnur, sem
fóru á markað
hérlendis og erlendis. Þorpin byggðust upp í kringum bátaútgerð og þjónustu við
nærsveitirnar og sinna nú mikilvægri félagsþjónustu fyrir þær og íbúa
sína. Með bættum samgöngum, einkum eftir byggingu brúar yfir ósa
Ölfusár, hefur þjónusta við ferðamenn
aukizt
verulega og vinsælt er að veiða í Ölfusárósum.
Árið 1998 varð sveitarfélagið Árborg til við sameiningu
Selfoss, Sandvíkurhrepps, Stokkseyrar og Eyrarbakka.
Í
Stokkseyrarhreppi eru mörg
myndarlegustu sveitabýli landsins og hafa ábúendur á þeim verið óragir við að
tileinka sér tæknilegar nýjungar í landbúnaði. Sögufrægt hús - Húsið á
Eyrarbakka er nú minjasafn og heimsækir fjöldi ferðamanna það ár
hvert.
Eyrabakki og
Stokkseyri meira
Vegalendin frá Reykjavík er um 66 km.
Selfoss
13 km <Eyrarbakki>
Þorlákshöfn 15 km.
.
|