|

Hvernig væri að stikla um landið á haghvæman hátt frá Reykjavík um
Fjallabak og stanza, þar sem hugurinn girnist og njóta umhverfis og aðbúnaðar um
tíma. Þegar því er lokið er stokkið um borð aftur og haldið á vit frekari
ævintýra.
Landmannalaugar eru nyrðri endastöð gönguleiðarinnar (Laugavegur)
til Þórsmerkur, þaðan sem
sumir halda áfram yfir
Fimmvörðuháls til Skóga
á suðurströndinni, dvelja í Mörkinni eða fara beint með
áætlunarbíl heim á leið.
Það kemur verulega á óvart hvað er í boði á hinum fjölmörgu stöðum, sem
áætlunarbílarnir fara um. Það er hægt að velja fjölda annarra
áætlunarleiða, s.s. í Þórsmörk, í Lakagíga frá Klaustri og Skaftafelli og
jafnvel allan hringveginn. Þú stoppar þar sem þú óskar eins lengi og
áætlunin segir til um.
ÁÆTLUN
REYKJAVÍK
- LANDMANNALAUGAR - REYKJAVÍK
|