Vatnsnes er hálendur skagi milli Miðfjarðar og
Húnafjarðar. Láglendi er lítið, einna mest á vesturhlutanum, þar
sem byggðin er aðallega. Hringvegurinn um Vatnsnes er u.þ.b. 100 km
langur en vel þess virði að leggja lykkju á leið sína. Þar er
margt skoðunarvert, s.s. Hvítserkur, selalátur, fuglalíf og útsýni
er frábært á góðum degi.