|
Stapavík er lítil vík, skammt frá ósum Selfljóts, utan Unaóss
í Hjaltastaðaþinghá. Víkin er umgirt hamraveggjum og hún tengist
verzlunarsögu Borgarfjarðar eystri og Héraðs. Á Krosshöfða,
skammt frá Stapavík, var árið 1902 löggilt verzlunarhöfn og þar
verzluðu bændur frá Borgarfirði eystri og Héraði fram eftir
öldinni. Þegar lendingin við Krosshöfðann varð ófær vegna
sandburðar á þriðja áratug aldarinnar var uppskipunin flutt til
Stapavíkur og þar reist handknúið spil. Aðstaðan í Stapavík
varð aldrei góð og uppskipun á Krosshöfða og í Stapavík var
endanlega hætt 1945. Lendingin í Stapavík hefur versnað á síðustu
árum vegna sandburðar. |