|
Hlaðið
steinhús úr ótilhöggnum steini, reist 1875. Steinlímið var
jökulleir. Að baki þess og tengdur því var torfbær. Önnur dæmi um þessa tækni munu
ekki vera varðveitt í byggingu hér á landi. Eikarstokkar
eru yfir gluggum. Steinhúsið er að utanmáli 5,0 m breitt
og 7,8 m langt, jarðhæð, lágur kjallari og portbyggt ris.
Efri hluti gaflveggja, þ.e. bjórinn, er úr timbri, með
listaþili.
Þarna var bænhús í katólskum sið.
Fólk af Becksætt bjó þarna á seinni hluta 19. aldar.
Meðal ættingja voru Þórólfur Beck, skipstjóri, og Sigríður
Beck móðir séra Jakobs Jónssonar og Eysteins Jónssonar
(1906-1993), ráðherra.
Þjóðminjasafn tók húsið í sína vörslu árið 1989. Byrjað
var að dytta að því ári síðar og viðgerðir hófust 1991.
Þakið var m.a. endurbætt og klætt rennisúð á ný, nýir
gluggar smíðaðir og gert við báða gafla hússins. Viðgerðir
lágu niðri um nokkurra ára skeið,
ekki síst vegna þess hve þjóðvegurinn lá nærri húsinu og
umferðarþungi olli miklum titringi. Vegurinn
var færður
fjær húsinu í byrjun 21. aldar og nýtur það sín nú mun betur en áður.
Unnið var að endurbótum á húsinu 2008-2009.
Sunnan hússins stendur hið stóra álver
Alcoa-Fjarðarál. Þetta fyrirtæki lét 16 milljónir
króna af hendi rakna til viðhalds Sómastaða hinn 3.
desember 2007. |